Samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs ætlar ríkissjóður að hafa meira en 100 milljarða króna tekjur af bílum og notkun þeirra á vegum landsins.
Tekjur af innflutningi ökutækja, akstri og eldsneyti eru áætlaðar 78 milljarðar króna. Á hluta þessara tekjupósta leggst virðisaukaskattur að auki. Til viðbótar hefur ríkissjóður miklar tekjur af sköttum á viðgerðar- og varahlutaþjónustu. Það verða því vel yfir 100 milljarðar króna sem bíleigendur leggja til sameiginlegra sjóða á næsta ári.
Útgjöld ríkisins til vegamála eru áætluð 46 milljarðar króna 2026, eða innan við helmingur af því sem eigendur ökutækja eiga að borga. Þar af eru rúmlega 34 milljarðar áformaðir í framkvæmdir og viðhald vegakerfisins.
Sérkennilegt útspil fyrrum samgönguráðherra
Í ljósi þessara staðreynda er meira en lítið undarlegt að sjá fyrrum samgönguráðherra halda því fram að tekjur af umferð standi aðeins undir litlum hluta af framlögum til samgöngumála.
Í frétt í Morgunblaðinu 10. september heldur Jón Gunnarsson þingmaður og fyrrum samgönguráðherra því fram að árið 2024 hafi fjárframlög ríkisins umfram tekjur af samgöngum numið 39,5 milljörðum króna. Jón fullyrðir að tekjur hafi aðeins verið 21,8 milljarðar króna. Þar tilgreinir hann aðeins sérgreindar tekjur af eldsneyti og kílómetragjaldi, en sleppir vörugjöldum, kolefnisgjaldi, bifreiðagjaldi og kílómetragjaldi.
Ósambærilegur samanburður
Þingmaðurinn ber heildarútgjöld til samgöngumála saman við þessa afmörkuðu tekjupósta af ökutækjum til að komast að niðurstöðu sinni. Þar ber hann saman vínber og epli. Í heildarútgjöldum til samgöngumála eru ekki aðeins vegamál, heldur einnig flugvellir, hafnir, vitamál, niðurgreiðslur á almenningssamgöngum, ferjur, slysarannsóknir í lofti, láði og legi, öryggismál og öll stjórnsýsla þessa málaflokks.
Það kemur verulega á óvart að fyrrum samgönguráðherra virðist ekki betur að sér um tekju- og gjaldahliðar samgöngumála en fullyrðingar hans bera vitni. En tilgangurinn virðist helga meðalið. Í frétt Morgunblaðsins segir Jón Gunnarsson að við þessum meinta útgjaldahalla þurfi að bregðast með veggjöldum á umferð. Það er ekki í fyrsta sinn sem hann lýsir áhuga sínum á að auka álögur á bíleigendur með vegtollum. Þær hugmyndir hafa verið hans ær og kýr í langan tíma.