Í janúar 2025 jókst umferðin um 4,2% yfir 16 lykilteljara á Hringvegi (1), samanborið við sama mánuð árið áður, og slegið var nýtt umferðarmet með rúmlega 70.000 bílum að jafnaði á dag.
Mestu aukninguna má sjá á Vesturlandi (6,0%) og höfuðborgarsvæðinu (4,3%), en minnst á Norðurlandi (0,7%). Mýrdalssandur sýndi mesta aukningu (14,9%), en einungis Mývatnsöræfi sýndu samdrátt (4,3%). Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Í nýliðnum janúar jókst umferðin um 4,2% yfir 16 lykilteljara á Hringvegi (1), borið saman við sama mánuð á síðasta ári. Þar með var slegið nýtt umferðarmet í janúar, yfir umrædd mælisnið, en alls fóru rúmlega 70 þúsund (ökutæki/sólarhring) að jafnaði yfir mælisniðin 16 en tæplega 68 þús (ökutæki/sólarhring) fóru um þessi sömu snið í janúar á síðasta ári.
Árleg meðaltalsaukning í janúar, frá upphafi samantektar, er 3,3%, svo núverandi aukning er vel yfir meðaltali.
Mestu munar um að umferð jókst um 6,0% yfir mælisnið á Vesturlandi og 4,3% á og í grennd við höfuðborgarsvæðið. Öll svæði sýndu aukningu en minnst jókst umferð um Norðurland, eða um 0,7%.
Af einstaka mælisniðum sýndi mælisnið á Mýrdalssandi mesta aukningu eða 14,9% en aðeins eitt snið sýndi samdrátt en það var á Mývatnsöræfum eða 4,3% samdrátt.
Á milli ára mældist aukning í umferð alla vikudaga, fyrir utan föstudaga, en mest jókst umferð á mánudögum eða um 10% en 1,6% samdráttur varð í umferð á föstudögum. Mest var ekið á föstudögum en minnst á laugardögum.