Hraðaeftirlit lögreglunnar á höfuðuborgarsvæðinu

Lestími: 2 mín

Myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Miklubraut, Langholtsvegi, Breiðholtsbraut, Eiðsgranda og Sæbraut í síðustu viku.Brot 343 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Miklubraut, á gatnamótum við Grensásveg.

Á tímabilinu var 42.042 ökutækjum ekið þessa akstursleið. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 135. Tuttugu og einu ökutæki var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Brot 47 ökumanna voru mynduð á Langholtsvegi í Reykjavík

Brot 47 ökumanna voru mynduð á Langholtsvegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Langholtsveg, við Langholtsveg 112. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 100 ökutæki þessa akstursleið og því óku 47% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 65.

Brot 134 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Breiðholtsbraut, á móts við Rjúpufell. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 716 ökutæki þessa akstursleið og því óku 19% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði (vegna framkvæmda). Sá sem hraðast ók mældist á 80.

Brot 20 ökumanna voru mynduð á Eiðsgranda í Reykjavík

Brot 20 ökumanna voru mynduð á Eiðsgranda í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Eiðsgranda, við Rekagranda. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 308 ökutæki þessa akstursleið og því óku 6% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 73.

Brot 100 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Sæbraut. að Súðarvogi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 677 ökutæki þessa akstursleið og því óku 15% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 76 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 93.

Deila grein: