Hraðakstur á Miklubraut –  brot 654 ökumanna voru mynduð

Lestími: < 1 mín

Brot 654 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 21. ágúst til mánudagsins 25. ágúst. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á gatnamótum við Grensásveg að því er fram kemur í upplýsingum frá lögreglunni.

26.980 ökutæki óku þessa akstursleið á fjórum sólarhringum

 Á fjórum sólarhringum fóru 26.980 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 105. Fimm ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Þá voru brot 67 ökumanna voru mynduð í Skógarseli í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skógarsel í suðurátt, að Ölduseli. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 133 ökutæki þessa akstursleið og því ók helmingur ökumanna, eða 50%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 61.

Vöktun lögreglunnar í Skógarseli er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.

Deila grein: