Ný brú yfir Sæbraut tekin í gagn­ið

Lestími: < 1 mín

Ný göngu- og hjólabrú yfir Sæbraut hefur verið opnuð. Brúin bætir umferðaröryggi verulega fyrir vegfarendur milli nýrrar Vogabyggðar og Vogahverfis, ekki síst fyrir nemendur í Vogaskóla. Kapp var lagt á að hún yrði tilbúin áður en skólastarf hæfist.

Um er að ræða tímabundna brú sem mun standa þar til framkvæmdir vegna Sæbrautarstokks hefjast en þar sem brúin er færanleg verður hægt að nota hana á öðrum stað síðar. Brúin er um 28 metra löng og vegur um 30 tonn. Með tilkomu hennar er komin gönguleið milli Tranavogs og Snekkjuvogs. Brúin er yfirbyggð með lyftu og tröppum til að tryggja gott aðgengi fyrir öll.

Góð reynsla af sambærilegum brúm

Reykjavíkurborg og Vegagerðin hófu undirbúning formlega haustið 2022. Skoðaðir voru möguleikar á því að gera brú annars vegar með römpum og hins vegar með lyftum. Mikill hæðarmunur er á þessum slóðum, svo lyftubrú þótti betri kostur. Góð reynsla hefur verið af sambærilegum brúm til dæmis í Noregi.

Framkvæmdin er samvinnuverkefni Reykjavíkurborgar, Vegagerðarinnar og Betri samgangna og heyrir undir verkefni Samgöngusáttmálans.

Verkís hannaði mannvirkið og Ístak sá um framkvæmdir. VBV verkfræðistofa hafði eftirlit og umsjón á sinni könnu. Vegagerðin hefur haft yfirumsjón með verkinu fyrir hönd verkkaupa.

Deila grein: