FÍB svarar yfirlýsingu framkvæmdastjóra SFF

Lestími: 2 mín

FÍB gerir athugasemdir við yfirlýsingu Heiðrúnar Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu, SFF. Þar hafnar Heiðrún gagnrýni FÍB á tilraunir hagfræðings SFF til að hafa letjandi áhrif á samkeppni á vátryggingamarkaði.

FÍB hafði kvartað til Samkeppniseftirlitsins (SKE) undan ummælum hagfræðings Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF). FÍB sakaði samtökin um tilraun til að draga úr samkeppni á tryggingamarkaði eftir að hagfræðingurinn lýsti í viðtali viðvarandi tapi af vátryggingastarfsemi á Íslandi.

Athugasemdir við yfirlýsingu Heiðrúnar Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu, SFF:

  • Í blaðaviðtali hélt hagfræðingur SFF því fram að viðvarandi tap væri af vátryggingastarfsemi og afkoma af tryggingum væri lökust á Íslandi.
  • FÍB sýnir fram á það í kvörtun sinni til Samkeppniseftirlitsins að þetta er rangt. Afkoman af vátryggingastarfseminni hefur verið jákvæð síðustu þrjú ár, þar af mjög jákvæð árið 2024. Um það vitna tölur Seðlabankans um tryggingamarkaðinn.
  • Með villandi umræðu um sífelldan taprekstur og meinta grimma samkeppni er hagfræðingur SFF að senda út þau skilaboð til neytenda að ekki stoði að leita til tryggingafélaganna um lægri iðgjöld. Þar sé ekkert að hafa. Slík orðræða gengur gegn ákvæðum samkeppnislaga sem banna samtökum á borð við SFF að beita sér gegn samkeppni.
  • Framkvæmdastjóri SFF segir að skýrt komi fram í blaðaviðtalinu að líftryggingar væru undanskildar í þessari umfjöllun. Það skiptir engu máli, því sú vátryggingastarfsemi sem hagfræðingurinn talar um (skaðatryggingar) hefur skilað jákvæðri afkomu síðustu þrjú ár. Hagfræðingurinn gat þess ekki, heldur leitaði allt að sjö ár aftur í tímann til að sýna aðra og dekkri mynd.
  • Engan skyldi furða þó líftryggingum hafi verið sleppt í viðtalinu. Þær skila miklum hagnaði fyrir tryggingafélögin og eru órjúfanlegur hluti af vátryggingastarfsemi þeirra. Með þögninni um afkomu líftrygginga skapaði hagfræðingur SFF þá mynd af starfsemi tryggingafélaganna að þar væri með engu móti hægt að mæta viðskiptavinum með hagstæðari kjörum.

Fram kom á visir.is í gær að Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu hafna ásökunum Félags íslenskra biðfreiðaeigenda, um tilraun til að draga úr samkeppni á tryggingamarkaði. Félagið kvartaði til Samkeppniseftirlitsins undan ummælum hagfræðings SFF.

Sjá einnig FÍB kvartar til Samkeppniseftirlitsins

Deila grein: