Umferðar­stýr­ing vegna almyrkv­ans 12. ágúst

Lestími: 2 mín

Vegna almyrkvans þann 12. ágúst nk. má búast við mikilli umferð víða á vestanverðu landinu, sérstaklega á þeim stöðum þar sem myrkvinn stendur hvað lengst yfir. Til að tryggja öryggi vegfarenda og greiða fyrir umferð verður tímabundin umferðarstýring á nokkrum vegum að því fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Umferðarstýring hefst almennt klukkan 8:00 að morgni 12. ágúst

Umferðarstýring hefst almennt klukkan 8:00 að morgni 12. ágúst eða aðeins síðar og stendur fram yfir sólmyrkvann eftir því sem þörf krefur. Á flestum vegum verður um einstefnu að ræða sem mun snúast við eftir almyrkvann en á öðrum verða tímabundnar lokanir eða breytingar á akstursleiðum.

Einnig gæti komið til frekari umferðarstýringar eða lokana eftir því hvernig umferðin þróast þann 12. ágúst. Ef miklar umferðartafir verða við Hvalfjarðargöng gæti þurft að loka þeim og beina umferð um Hvalfjörð. Einnig má búast við umferðarstýringu um Vestfjarðagöng, þ.e. göngin undir Breiðadals- og Botnsheiði.

Fólk er hvatt til að skipuleggja ferðir sínar vel

Fólk er hvatt til að skipuleggja ferðir sínar vel, leggja tímanlega af stað, kynna sér fyrirkomulag umferðarstýringar mjög vel áður en haldið er af stað og gera ráð fyrir töluvert lengri ferðatíma en vanalega.

Nánari upplýsingar um umferðarstýringu og kort af þeim svæðum sem breytingarnar ná til eru hér: Almyrkvi á sólu

Á ensku má finna upplýsingar hér: Total Solar Eclipse 2026

Einnig verða upplýsingar uppfærðar reglulega á Umferðin.is

Einstefna á völdum vegum

Vestfirðir

  • Örlygshafnarvegur (612) og Rauðasandsvegur (614): Einstefna frá klukkan 08:00 þann 12. ágúst.
  • Lögreglan verður með eftirlit á svæðinu frá klukkan 23:00 að kvöldi 11. ágúst.

Vesturland

  • Útnesvegur (574) og Klofningsvegur (590): Einstefna frá klukkan 09:00.

Reykjanes

  • Garðskagavegur (45) og Vatnsleysustrandarvegur (420): Einstefna frá klukkan 11:00.

Tímabundnar lokanir

Nokkur sveitarfélög hafa ákveðið að loka eða breyta tímabundið sumum akstursleiðum, svo sem nokkrum götum á höfuðborgarsvæðinu og veginum upp á Bolafjall. Hann verður lokaður frá kl. 08:00 morguninn 12. ágúst en boðið upp á sætaferðir frá Félagsheimilinu í Bolungarvík, sjá hér.

Deila grein: