Mesta mælda umferð á Hring­vegi í maímán­uði

Lestími: < 1 mín

Umferðin um lykilmælisnið Vegagerðarinnar á Hringveginum í nýliðnum maí jókst um tæp þrjú prósent frá því fyrir ári síðan. Aldrei hefur mælst meiri umferð í þessum mánuði frá upphafi mælinga. Útlit er nú fyrir að umferðin á Hringvegi muni aukast um fimm prósent í ár, sem telst mikil aukning.

Áætlað er að umferðin, yfir 16 lykiteljara Vegagerðarinnar á Hringvegi, hafi aukist um 2,7% milli maí mánaða 2024 og 2025. Þá hefur umferð aldrei verið meiri í þessum mánuði frá upphafi mælinga.

Mest jókst umferð um Vesturland en minnst um Austurland.  Fyrir einstaka mælisnið þá jókst umferð mest um mælisnið vestan Hvolsvallar eða um 8% en minnst varð aukningin um mælisnið á Fagradal, fyrir austan.

Frá áramótum
Nú hefur umferð aukist um 1,8% frá áramótum miðað við sama tímabil á síðasta ári. Mest hefur umferð aukist um mælisnið á Norðurlandi eða um 4,9% en umferð hefur staðið í stað um Suðurland.

Umferð vikudaga
Það sem af er ári er mest ekið á föstudögum og minnst á laugardögum.  Umferð hefur aukist mest á mánudögum en tæplega 1% samdráttur mælist í umferð á fimmtudögum.

Þegar fimm fyrstu mánuðir ársins eru liðnir lítur út fyrir að umferðin geti aukist um 5% miðað við árið 2024.  Þá lítur einnig út fyrir að umferð geti aukist hlutfallslega mest um Norðurland eða um tæp 10% en minnstri aukningu er að vænta um mælisnið á og við höfuðborgarsvæðið eða um 3%.

Deila grein: