Fljótagöng, Fjarðagöng, Súðavíkurgöng og Miklidalur og Hálfdán verða sett í forgang í nýrri jarðgangaáætlun sem kynnt var á fundi innviðaráðherra þar sem hann kynnti samgönguáætlun fyrir 2026 til 2040. Mælt verður fyrir tillögunni á Alþingi í næstu viku. Fljótagöng eru efst á forgangslista jarðganga í nýrri samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar. Fjarðarheiðargöng eru ekki á listanum en eru sögð áfram til nánari skoðunar, ásamt fleiri svæðum á borð við Reynisfjall, Hellisheiði og Öxnadalsheiði, svo dæmi séu nefnd.
,,Ræsum vélarnar“
Ný samgönguáætlun er kynnt undir yfirskriftinni „Ræsum vélarnar“ og hefur það að meginmarkmiði að laga vegi, hefja stórframkvæmdir og byrja aftur að bora jarðgöng á Íslandi. Ejólfur Ármannsson, innviðarráðherra, sagði á fundinum að undirbúningur við næstu jarðgöng hefjist á næsta ári og að verktakar byrji að bora 2027.
Fljótagöng munu tengja saman Siglufjörð og Fljótin
Fljótagöng, sem munu tengja saman Siglufjörð og Fljótin og leysa Strákagöng af hólmi, eru efst vegna sérstaklega hættulegrar náttúruvár eins og fram kom á fundinum. Fjarðagöng og Súðavíkurgöng skipa saman annað og þriðja sæti forgangslistans.
Fjarðagöng eru tvenn göng frá Seyðisfirði til Mjóafjarðar annars vegar og frá Mjóafirði til Norðfjarðar hins vegar. Súðavíkurgöng eiga að tengja saman Súðavík og Ísafjörð og leysa af hólmi leið með grjóthruni og snjóflóðahættu. Koma nokkrir valkostir til greina.
Í fjórða sæti forgangslistans er Miklidalur og Hálfdán. Um er að ræða göng sem tengja Patreksfjörð, Tálknafjörð og Bíldudal og koma nokkrir valkostir til greina.
Samkvæmt nýrri samanburðargreiningu á jarðgangakostum á Austurlandi sé samfélagslegur ábati Fjarðaganga umtalsvert meiri en Fjarðarheiðarganga.Það helgast fyrst og fremst af styttingu ferðatíma milli byggðarlaga á svæðinu. Eftir sem áður munu Fjarðagöng rjúfa vetrareinangrun Seyðisfjarðar og í leiðinni opna inn í Mjóafjörð. Af þeim sökum er lagt til í tillögu að samgönguáætlun að rannsóknum og undirbúningi Fjarðaganga verði hraðað eins og kostur er og framkvæmdum við Fjarðarheiðargöng frestað.
Ákvörðunin var erfið
Eyjólfi Ármannssyni, innviðaráðherra, sagði ákvörðunina hafa verið erfið. Á fundinum kom að um hana hefði ríkt breið sátt. Ríkisstjórnin væri einhuga og samstíga í þessum efnum. Þetta hefði samt ekki verið auðvelt ákvörðun og hún væri högg fyrir suma.
Eyjólfur var minntur á það að að Fljótagöng væru í hans kjördæmi, Norðvestur. Hann svarar að þetta sé ekki kjördæmapot. Siglufjörður sé heldur ekki í hans kjördæmi.
Kristrún, forsætisráðherra, sagði á fundinum að það kunni að vera að Fjarðarheiðargöng hafi verið efst á lista í fyrri áætlun, en þau hafi aldrei verið fjármögnuð og framkvæmdir aldrei hafnar. Nú sé hins vegar komið samkomulag og sátt um fjármögnun og því hægt að hefjast handa. Áður hafi verið hægt að segja hluti án þess að framkvæma þá.
Ellefu aðrir jarðgangakostir
Fyrir utan þau sex jarðgöng sem eru í forgangi séu ellefu aðrir jarðgangakostir, eða svæði, áfram til skoðunar. Það eru Fjarðarheiðargöng, Hvalfjarðargöng II, göng milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur, Breiðadalsleggur (breikkun), Klettsháls, Gemlufallsheiði, Öxnadalsheiði, Reynisfjall, Lónsheiði, Hellisheiði, Berufjarðargöng og Breiðdalsheiðargöng.







