Umferðarþing Samgöngustofu

Lestími: < 1 mín

Opnað hefur verið fyrir skráningu á Umferðarþing sem haldið verður þann 22. september næstkomandi í Gamla Bíói. Yfirskrift þingsins í ár er „Ungt fólk og umferðin“. Á þinginu verður sjónum beint að stöðu, reynslu og viðhorfum ungs fólks í umferðinni, sem og þeim áskorunum og tækifærum sem felast í því að stuðla að auknu umferðaröryggi og ábyrgri þátttöku þeirra í samgöngum.

Sérfræðingar frá ólíkum sviðum deila þekkingu sinni og reynslu. Þá fáum við einnig tækifæri til að heyra beint frá unga fólkinu sjálfu og fá innsýn í hvernig þau upplifa umhverfi sitt í umferðinni og hvaða sjónarmið þau telja mikilvægt að hafa í huga til að stuðla að öruggari umferð.

Vettvangur fyrir faglegt samtal

Umferðarþing Samgöngustofu er vettvangur fyrir faglegt samtal, miðlun þekkingar og skoðanaskipti um málefni sem varða umferðaröryggi og samgöngur. Þingið er ætlað öllum þeim sem hafa áhuga á öruggri og ábyrgri þátttöku í umferðinni og vilja leggja sitt af mörkum til jákvæðrar þróunar í umferðaröryggismálum.

Hér er skráningarhlekkur þar sem hægt er að skrá sig og nálgast frekari upplýsingar um þingið sjálft.

Deila grein: