Í samráði við lögregluna og vegna umferðaröryggis verður kveikt á götulýsingu á stofnbrautum á höfuðborgarsvæðinu þar sem leyfður umferðarhraði er meiri en 60 km/klst. meðan almyrkvi á sólu gengur yfir á morgun, 12. ágúst. Þetta eru t.d. Ártúnsbrekka, Breiðholtsbraut, Hafnarfjarðarvegur, Miklabraut og Sæbraut.
Þar sem umferðarhraðinn er minni, t.d. á Hringbraut í Reykjavík og Strandgötu í Hafnarfirði, verður slökkt á lýsingunni meðan sólmyrkvinn gengur yfir. Almennt verður slökkt á götulýsingu á götum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Alls staðar verður kveikt á umferðarljósum á gatnamótum og þau ávallt virk.
Sjá má á vef Vegagerðarinnar, Almyrkvi á sólu, hvernig umferðarstýringu verður háttað víða á vestanverðu landinu. Mest verður um að ræða einstefnu inn á tiltekin svæði. Að loknum almyrkvanum verður þeim flestum aflétt.
Þá er rétt að minna á að hugsanlega þarf að beita umferðarstýringu í Hvalfjarðargöngum og beina ferðalöngum um Hvalfjörð. Sama á við um Breiðadals- og Botnsheiðargöng á Vestfjörðum.
Minnt er á tilmæli um að best geti verið að upplifa sólmyrkvann heima hjá sér. Þeir sem þurfa að ferðast gefi sér góðan tíma til þess, leggi snemma af stað og verði viðbúnir því að heimferð gæti einnig tekið mjög langan tíma.







