Viðhaldsvinnu á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum hefst í næstu viku

Lestími: < 1 mín

Áætlað er að hefja á ný viðhaldsvinnu á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði á Hringvegi (1) frá og með mánudeginum 17. ágúst, eins og til stóð þegar hlé var gert á þeirri vinnu vegna óhagstæðs veðurs í júní sl.

Gert er ráð fyrir að unnið verði fram í miðjan september svo hægt sé að ljúka þeim verkefnum sem til stóð að klára í sumar, en aðgerðirnar eru háðar veðri.

Brúin var byggð árið 1947 og burðarþolið hefur minnkað í áranna rás. Ryðmyndun í köplum er orðin nokkur og því afar mikilvægt að stöðva þá þróun með því að klára þessa vinnu fyrir veturinn.

Loka þarf fyrir umferð um brúna meðan á framkvæmdum stendur og verða lokanir með sama fyrirkomulagi og fyrr í sumar.

Unnið verður alla virka daga frá klukkan 8:00 á morgnana til klukkan 19:00 á kvöldin. Opið verður fyrir umferð fjórum sinnum á dag:

  • 09:45 – 10:15
  • 12:00 – 13:00
  • 14:45 – 15:15
  • 16:45 – 17:15

Opið verður frá því að vinnu lýkur um kvöldmatarleytið og þar til vinna hefst á ný að morgni. Opið verður fyrir umferð um helgar.

Ekki er hægt að sinna viðhaldsvinnu á borð við málningarvinnu að nóttu til því þá er loftraki of hár.

Lokanir ættu ekki að hafa mikil áhrif á neyðarflutninga þar sem unnt verður að opna fyrir umferð um brúna með skömmu fyrirvara ef aðstæður krefja. Upplýsingaskilti með leiðbeiningum og merkingum verða sett upp við brúna.

Vegagerðin biðlar til vegfarenda að sýna þolinmæði, fylgja merkingum og virða fyrirmæli á svæðinu.

Raunupplýsingar um umferðartakmarkanir er ávallt að finna á www.umferdin.is

Deila grein: