Lokun Hringvegar vegna malbikunar á Suðurlandsvegi

Lestími: < 1 mín

Miðvikudaginn 8. júlí er stefnt á malbikun á Suðurlandsvegi og verður hringveginum lokað til austurs við Gaulverjabæjarveg.

Önnur akreinin verður malbikuð í einu og umferð á leið til vesturs ekur meðfram vinnusvæðinu. Hjáleið á leið austur verður um Gaulverjabæjarveg og Villingaholtsveg. Merkingar og hjáleiðir verða settar upp.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 07:00 til kl. 17:00 miðvikudaginn 8. júlí

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.

Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Deila grein: