Vel sóttir fundir um Sæbrautarstokk

Lestími: < 1 mín

Góður rómur var gerður að opnu húsi um Sæbrautarstokk, sem haldið var tvisvar í vikunni, þriðjudag og fimmtudag. Á annað hundrað manns gáfu sér tíma til að mæta, kynna sér verkefnið og ræða við teymið sem vinnur að undirbúningi stokksins.

Flestir höfðu áhuga á að vita hvaða áhrif framkvæmdir vegna Sæbrautarstokks munu hafa á svæðið, bæði á framkvæmdatíma og einnig að þeim loknum. Áformað er að fyrstu framkvæmdir hefjist síðla árs 2027. Vegagerðin, Reykjavíkurborg og Betri samgöngur stóðu að opna húsinu.

Sæbrautarstokkur er hluti af Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og verður staðsettur á u.þ.b. 1 km löngum kafla frá mislægum gatnamótum við Miklubraut og norður fyrir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs. Á yfirborði stokksins verður nýr borgargarður sem tengir saman Vogahverfi og Vogabyggð.  

Markmiðið með stokknum er að bæta umhverfisgæði og tengja betur saman hverfi, greiða fyrir umferðarflæði á Sæbraut og greiða götu Borgarlínunnar. Þá er mannvirkinu ætlað að bæta flæði vöruflutninga við Sundahöfn og er ein af forsendum Sundabrautar. 

Hægt er að nálgast frekari gögn í Skipulagsgáttinni www.skipulagsgatt.is. Opið er fyrir athugasemdir til og með 8. júlí. 

Sæbrautarstokkur – umhverfismat

Sæbrautarstokkur – skipulagstillaga 

Vogabyggð 2 – skipulagstillaga 

Vogahverfi – skipulagstillaga 

Deila grein: