Íbúar í Vesturbænum eru mjög ósáttir með nýlegar malbikunarframkvæmdir Vegagerðarinnar á Eiðisgranda. Kvartað er yfir hvössum brúnum, dældum, stífluðum niðurföllum og stórum pollum sem skapa slysahættu í frosti.
Framkvæmdin verði skoðuð betur
Í svari Vegagerðarinnar við fyrirspurn mbl.is segir G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar að aðeins hafi verið um svokallaða „hjólfarafyllingu“ að ræða til að laga djúp hjólför, en það á að duga í 2–3 ár þar til fullt malbik verður lagt. Upplýsingafulltrúi segir þó að framkvæmdin verði skoðuð betur þar sem þeir séu „ekki sáttir með þetta svona.“
Fyrirtækið hafi nákvæmlega fylgt óskum Vegagerðarinnar
Björk Úlfarsdóttir, sviðsstjóri Colas,sem sá um framkvæmdina, segir að fyrirtækið hafi nákvæmlega fylgt óskum Vegagerðarinnar. Engar aukaaðgerðir hafi verið pantaðar til að laga niðurföll eða polla og því beri Vegagerðin ábyrgð á útkomunni.







