ARCHIV - Nein, schlechte Idee: Wer im Auto ein Smartphone nutzen will, fährt besser rechts ran - und schaltet den Motor ab. Sonst könnte es teuer werden - gefährlich allemal. (zu dpa: «Handy am Steuer: Das sind die Regeln, und das die Bußgelder») Foto: Bernd Weißbrod/dpa - Honorarfrei nur für Bezieher des dpa-Themendienstes +++ dpa-Themendienst +++

Farsímanotkun undir stýri enn útbreidd í Þýskalandi

Lestími: 2 mín

Nýleg rannsókn á vegum Félags þýskra bifreiðaeigenda, ADAC, leiðir í ljós að farsímanotkun undir stýri sé enn útbreidd meðal ökumanna þrátt fyrir alvarlega slysahættu. Þótt um 400.000 tilfelli séu skráð á hverju ári er raunhæft að ætla að fjöldi dulinna tilfella sé margfaldur á við það. Í nýlegri könnun sem beindist að umferð í fimm stórum þýskum borgum kom í ljós að 2,7 prósent ökumanna vélknúinna ökutækja gerðust brotlegir við reglur um farsímanotkun.

Ef þessi tala er heimfærð upp á heildarmagn árlegrar umferðar vélknúinna ökutækja í Þýskalandi bendir hún til gífurlegs fjölda brota, eða um það bil einn milljarð brota á ári, og þar af leiðandi verulegrar hættu fyrir umferðaröryggi.

Ólíklegra er að hjólreiðamenn brjóti af sér

Niðurstöðurnar sýna einnig að ólíklegra er að hjólreiðamenn brjóti af sér (1,4 prósent) og að meirihluti brota, óháð samgöngumáta, á sér stað þegar fólk heldur á farsíma í hendinni en ekki upp við eyrað. Hver sá sem sem leitar að einhverju í snjallsímanum sínum tekur augun og athyglina af veginum, sem getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Þegar öllu er á botninn hvolft jafngildir það því að líta á farsíma í aðeins 2 sekúndur á 50 km/klst hraða og að aka 28 metra í „blindni“, með tilheyrandi hættu á að valda slysi.

Annar hver ökumaður viðurkennir að hafa notað snjallsímann sinn við akstur

Skoðanakönnun meðal dæmigerðs úrtaks staðfestir sömuleiðis mikla útbreiðslu og umtalsverða áhættu. Meira en annar hver ökumaður viðurkennir að hafa notað snjallsímann sinn við akstur. Að auki greina 41% frá hættulegum aðstæðum á veginum vegna þess að aðrir ökumenn notuðu farsíma sína. Á sama tíma er almennur stuðningur við hertari regur. Um 70% eru fylgjandi því að teknar verði upp farsímamyndavélar sem geta sjálfvirkt skráð brot.

ADAC leggur því til að umferðareftirlit verði aukið verulega

ADAC leggur því til að umferðareftirlit verði aukið verulega sem mikilvægt skref til skemmri tíma litið. Til meðallangs tíma kallar félagið eftir því að innleiddur verði lagarammi sem leyfir útbreidda notkun slíkra eftirlitsmyndavéla. Markmiðið verður að vera að grípa til strangra ráðstafana til að draga úr truflun í umferðinni og auka öryggi allra vegfarenda.

Prófunin fór fram í borgunum, Berlín, Frankfurt, Hamborg, Köln og München. Umferðarathugun rannsakenda á staðnum, á fjölförnum vegum á þéttbýlissvæðum, leiddi í ljós 262 farsímabrot á meðal 9.573 ökumanna vélknúinna ökutækja og 125 brot á meðal 9.239 hjólreiðamanna.

Deila grein: