Tesla hefur innkallað næstum þrjár milljónir bíla í Kína vegna öryggisathugana og hertra krafna kínverskra yfirvalda. Innköllunin nær til Model 3 og fleiri gerða. Athugasemdir varða öryggisþætti eins og virkni hurðarhúna og galla í kerfum sem fylgjast með athygli ökumann.
Í flestum tilfellum er hægt að laga þessi atriði með hugbúnaðaruppfærslu án þess að bíleigendur þurfi að koma með bílana á verkstæði. Eftir að vandamálið kom upp var ákveðið að innkalla hátt í þrjár milljónir Tesla sem hafa verið smíðaðar í Kína.Innköllunin hefur einnig áhrif á fleiri fyrirtæki, eða kínversku bílaframleiðendurna Xpeng, Xiaomi og Geely.
Tesla sagðist í tilkynningu á föstudaginn ætla að endurkalla hluta af Model 3-bílum sínum, ásamt Y, S og X, vegna hurðarhúna sem er „erfitt að koma auga á og nota vegna þess að liturinn þeirra en svipaður og í klæðningunni“.
Þetta gæti komið í veg fyrir að þeir sem eru í bílnum eða björgunarfólki takist að opna dyrnar í neyðartilvikum. Tesla sagðist ætla að koma upp merkingum í bíla sína þar sem varað er við þessu og uppfæra hugbúnað bílanna.
Ekki er ljóst hvort bílaframleiðendurnir ætli að innkalla bíla sína annars staðar í heiminum en BBC hefur haft samband við Tesla, Xpeng, Xiaomi og Geely og óskað eftir viðbrögðum.







