5,7% samdráttur í nýskráningum á milli ára

Lestími: < 1 mín

Nýskráningar nýrra fólksbifreiða það sem af er árinu eru alls 9.481. Þær voru á sama tíma í fyrra 8.945 og er því um 5,7% samdrátt að ræða á milli ára. Hlutdeild bifreiða til ökutækjaleiga er um 52,2% og til almennra notkunar 46,9%. Þetta kemur fram í tölum frá Bílgreinasambandinu.

Hlutdeild nýorkubíla nálægt 90%

Hlutdeild nýorkubíla í nýskráningum er nálægt 90% það sem af er árinu. Þar eru hreinir rafbílar með 44,9% hlutdeild, hybrid-bílar með 23,1% hlutdeild og tengiltvinnbílar með 20,4% hlutdeild. Það er af sem áður var því nú er hlutdeild bensínbíla 6% og dísilbíla 5,5%.

Þegar rýnt er nánar í tölur voru flestar nýskráningar í maí, alls1.547. í júní voru þær 1.439 og það sem af er ágústmánuði er þær orðnar 294.

KIA söluhæsta bílategundin

KIA er söluhæsta bílategundin það sem af er árinu með alls1.194 nýskráningar. Það er um 13,3% hlutdeild. Toyota kemur í öðru sæti með 1.017 nýskráningar og Tesla kemur í þriðja sætinu með 836 bifreiðar.

Deila grein: