Sjálfkeyrandi leigubílafyrirtækið Waymo hefur fengið 83 stöðumælasektir í borginni Austin í Texas. Samkvæmt heimildum frá Wall Street Journal hafa bílar Waymo safnað samtals 9.325 dollurum í sektir síðan þeir hófu starfsemi í Austin árið 2024. Fyrirtækið hefur borgað flestar sektirnar, en athyglisvert er að bílaflotinn geri nákvæmlega sömu mistökin.
Það voru 64 brot sem áttu sér stað á svæðum þar sem Waymo bíll hafði lagt þar sem bannað var að leggja og bíllinn þar með dreginn í burtu. Þessi fjöldi bendir til þess að vandamálið sé ekki einn ruglaður bíll heldur sé um kerfislegan veikleika að ræða í því hvernig tölvukerfi flotans velur hvar skal stöðva.
Ein hæsta sektin nam 519 dollara eftir að sjálfkeyrandi bíll lagði í stæði sem var ætlað hreyfihömluðum. Aðrir bílar fengu sektir fyrir útrunna stöðumæla. Þetta sýnir að eitthvað þarf að endurskoða tölvukerfið hjá Waymo.
Hvað er hægt að gera?
Stöðumælaverðir geta gefið út sektir á ökutæki Waymo eins og hvern annan bíl. Íbúar geta auk þess tilkynnt um sjálfkeyrandi bíla sem loka vegum eða leggja á ólöglegum svæðum. Þetta leysir þó ekki vandamálið þegar tómur bíll er staðsettur þar sem hann á ekki að vera. Það er enginn ökumaður undir stýri til að eiga í samskiptum við eða biðja um að færa bílinn.
Þetta er vandamál sem Waymo þarf að leysa ef það vill halda orðspori sínu. Ímynd fólks á sjálfkeyrandi bílum verður ekki sérstaklega góð ef þeir halda áfram að brjóta lögin. Einnig er það hættulegt fyrir aðra ökumenn ef sjálfkeyrandi bíll ákveður að stoppa á veginum og færir sig ekki.
Sjálfkeyrandi bílar Waymo safna umferðar sektum í Texas
Lestími: < 1 mín







