Breiðholtsbraut, frá Jaðarseli að Elliðavatnsvegi, er lokuð vegna umferðaróhapps sem varð við brúna sem þar er í smíðum. Ekki er ljóst hvenær hægt verður að opna fyrir umferð á ný. Vörubíll með pallinn uppi ók á undirslátt brúarinnar með þeim afleiðingum að pallurinn fór af bílnum og endaði öfugur undir brúnni.
Engin slys urðu á fólki en tíu manns voru á staðnum að vinna við brúna þegar óhappið varð. Fólki var að vonum brugðið en mesta mildi þykir að ekki fór verr. Í undirslættinum eru m.a. stálbitar sem hver um sig vegur allt að tvö tonn. Brúarmannvirkið sjálft er óskemmt.
Fyrirséð er að lokunin muni standa fram eftir degi og jafnvel lengur ef í ljós kemur að svæði er ekki öruggt. Hjáleiðir eru merktar.
Ljóst er að undirslátturinn hefur aflagast við höggið en það verður lagað og tekið út síðar í dag. Brúin sjálf var steypt þann 10. nóvember sl. og síðan þá hafa verið tímabundnar hæða- og hraðatakmarkanir, eða 4 metra hæð og 30 km hraði.
Uppfært:
Breiðholtsbraut hefur opnað aftur fyrir umferð. Samkvæmt vef Vegagerðarinnar, umferdin.is, var aftur opnað fyrir umferð rétt fyrir klukkan 19 í kvöld. Þar segir jafnframt að hraði hafi verið tekinn niður á svæðinu.
„Athugið að hæðartakmarkanir eru enn 4 metrar. Mjög mikilvægt er að verktakar, flutningsaðilar sem og aðrir virði hæðartakmarkanir,“ segir á vef Vegagerðarinnar.







