Niðurfelling olíugjalds ekki skilað sér að fullu til neytenda í formi lægra eldsneytisverðs

Lestími: 2 mín

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeiganda, FÍB, telur íslensku olíufélögin ekki hafa skilað niðurfellingu olíugjalds að fullu til neytenda í formi lægra eldsneytisverðs. Veltir hann því fyrir sér hvort tímabært sé að ríkið grípi inn í.  Þetta kom fram í viðtali við Runólf á mbl.is

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeiganda, ræddi við mbl.is í ljósi þess að mánuður er nú liðinn frá því að olíugjaldið var fellt niður.

Hefur eldsneytisverð lækkað allverulega frá því að gjöldin voru felld niður en Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, gagnrýndi þó olíufélögin nú þegar ný verðbólgumæling sýndi að verðbólga hefur aukist um 0,38%. Telur hann álagningu olíufélaganna hafa aukist. 

Costco eini aðilinn sem sýni lit

„Það er núna hærri álagning á eldsneyti að meðaltali en hefur verið undanliðinn misseri,“ segir Runólfur aðspurður út í verð á bensín og dísilolíu hjá olíufélögunum. 

Segir Runólfur að það sé aðeins einn aðili á eldsneytismarkaði sem sýni alvöru lit í samkeppni og á þar við Costco. 

„Vonandi hristir það aðeins upp í þeim sem eru fyrir á markaði. Ódýrasta verðið hjá öðrum er fimmtán krónum hærra en hjá Costco. Það veldur vonbrigðum að menn sjái ekki tækifæri til að efla samkeppni.“

Ef markaðnum er ekki treystandi íhuga yfirvöld væntanlega einhverjar aðgerðir

„Þetta er þekktur fákeppnismarkaður og sporin hræða. Olíufélögin fengu á sig ákæru fyrir samráð hér á árum áður. Þetta er því miður markaður sem er ekki dýnamískur og hann er ekki með eðlilega samkeppni í huga. 

Veltir Runólfur því fyrir sér hvort tímabært sé að ríkið grípi inn í með einhverjum hætti til að þvinga fram lækkanir hjá olíufélögunum. 

„Ef markaðnum er ekki treystandi íhuga yfirvöld væntanlega einhverjar aðgerðir. Við höfum séð í Danmörku og Belgíu að sett er álagningarþak eða önnur viðmið. Danski markaðurinn fylgir alltaf heimsmarkaðinum en við sjáum það ekki gerast hér,“ segir Runólfur Ólafsson í samtalinu við mbl.is

Deila grein: