BMW iX3 er á leiðinni á íslenskan markað. Þetta markar upphaf nýs tímabils í rafbíla framboði hjá BMW. iX3 er fyrsti bíllinn sem er byggður á nýjum grunni sem kallast Neue Klasse og leggur bílaframleiðandinn áherslu á aukna drægni, hraðari hleðslu og betri stafræna upplifun. Bíllinn er hannaður alveg frá grunni sem rafmagnsbíll og nýtir nýjustu tækni lausnir BMW á sviði rafdrifs og notendaviðmóts.
Allt að 805 kílómetra drægni samkvæmt WLTP staðli
BMW iX3 hefur allt að 805 kílómetra drægni samkvæmt WLTP staðli, sem setur hann framarlega miðað við aðra rafknúinna jeppa. Bíllinn getur tekið við allt að 400 kW hraðhleðslu við kjöraðstæður, sem getur skilað hleðslu allt að 80% á u.þ.b. 21 mínútu. Farangursrými bílsins er 1.750 lítrar, að auki er 58 lítra auka pláss undir vélarhlífinni sem er fullkomið til að geyma hleðslusnúruna.
Bíllinn sameinar háþróaða tækni, framúrskarandi aksturseiginleika og glæsilega hönnun, bæði að innan sem utan. Það má einnig finna nýja Panoramic iDrive, sem er næsta kynslóð stjórnkerfis BMW, sem á að auka öryggi og þægindi í akstri og býður upp á skýrari upplýsingagjöf.
Bíll ársins hjá TopGear.com
BMW iX3 hefur unnið til ótal verðlauna hjá alþjóðlegum bílafjölmiðlum. Bíllinn vann Car of the Year 2026 hjá TopGear.com, hlaut Gullna stýrið í þýskalandi og vann Car of the Year 2026 hjá Electrifying.com.
Forpöntun hjá BL er hafin og fyrstu afhendingar eru væntanlegar í apríl.







