Danski ríkislögreglustjórinn og Samgöngustofa Danmerkur hafa nú sammælst um samræmda verklagsreglu um hvernig lögregluumdæmi eigi að framfylgja lögunum þegar ökumenn keyra á óviðeigandi dekkjum á snjó- og ísilögðum vegum. Félag Danskra bifreiðaeigenda, FDM, fagnar þessu en telur að biðin hafi verið allt of löng.
Það er á ábyrgð ökumannsins að tryggja að bíllinn sé á viðeigandi dekkjum í vetrarfærð. Þannig hefur það verið síðan umferðarlögum var breytt þann 1. júlí síðastliðinn. Nýju reglurnar voru settar til að koma í veg fyrir að ökumenn lentu í hættulegum aðstæðum á sumardekkjum á hálum vegum.
Ásetningurinn var góður, en bæði ökumenn og lögregluumdæmi hafa verið á hálum ís hvað varðar túlkun nýju reglnanna. Því hvernig á eiginlega að túlka lögin?
Sum lögregluumdæmi hafa gert rassíur en önnur ekki
Óvissa hefur ríkt um þetta, sem hefur meðal annars þýtt að sum lögregluumdæmi hafa gert rassíur með kerfisbundnu eftirliti á dekkjum, á meðan önnur hafa ekki lagt mat á hvort dekkin væru óviðeigandi fyrr en slys hefur átt sér stað.
Vegna mismunandi nálgana og yfirlýsinga hefur ríkislögreglustjórinn rætt framfylgd nýju reglnanna um óviðeigandi dekk við dönsku samgöngustofuna.
Þar má sjá heimild til framfylgdar sem ætluð er í tilvikum þar sem akstur á augljóslega óviðeigandi dekkjum felur í sér hættu fyrir umferðaröryggi eða hindrar greiða færð. Þannig er ekki krafa um að tiltekinn atburður hafi átt sér stað, t.d. slys eða sýnilega óöruggur akstur áður en hægt er að grípa til aðgerða. Lögregluumdæmin eiga þó ekki að stunda kerfisbundna skoðun á dekkjum bíla.
Mikilvægasta að bifreiðar í umferðinni séu á réttum dekkjum
,,FDM fagnar því að ríkislögreglustjórinn gefi út skýr skilaboð og að ekki þurfi slys til að sektað sé. Það mikilvægasta að bifreiðar í umferðinni séu á réttum dekkjum og að ekki sé fyrst gripið inn í eftir að slysið er orðið,“ segir Dennis Lange, aðalráðgjafi hjá FDM og hvetur fólk til að aka á vetrardekkjum eða heilsársdekkjum sem eru 3PMSF-merkt yfir vetrarmánuðina.







