Félag íslenskra bifreiðaeigenda boðar til landsþings.
Föstudaginn 10. apríl 2026 kl. 16:00 að Skúlagötu 19, Reykjavík.
Landsþing hefur æðsta vald í málefnum FÍB.
Rétt til setu á landsþingi sem fulltrúi með atkvæðisrétt eiga allir fullgildir félagar í FÍB sem eru skuldlausir við félagssjóð og hafa verið félagsmenn í a.m.k. 6 mánuði fyrir boðað landsþing. Félagsmenn eru hvattir til að tilkynna landsþingsþátttöku sem fyrst eða í síðasta lagi 3. apríl í síma 414 9999 eða með tölvupósti á netfangið fib@fib.is.
Dagskrá og helstu mál:
- Farið verður yfir starf félagsins og reikninga félagssjóðs.
- Tillögur stjórnar um lagabreytingar verða ræddar og bornar undir þingið. Lagabreytingarnar miða að því að auka lýðræðislegt aðgengi félagsmanna að stjórn og stefnumótun FÍB.
- Fjallað verður um neytendamál og umferðaröryggi með sérstaka áherslu á öruggari vegi og umhverfi vega.
Áhugasamir geta nálgast lög félagsins hér.







