Borgarráð samþykkti í gær tillögu Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar að deiliskipulagi fyrir tvöföldun Suðurlandsvegar, frá vegamótum við Bæjarháls að sveitarfélagsmörkum við Mosfellsbæ nálægt Hólmsá að því er fram kemur í tilkynningu.
Markmið framkvæmdarinnar er að auka umferðaröryggi og tryggja greiðari umferð um Suðurlandsveg með því að aðskilja akstursstefnur. Tvöföldun vegarins á þessum kafla er hluti af stærra verkefni sem felst í breikkun Suðurlandsvegar frá Hádegismóum í Reykjavík að Hveragerði.
Bætt öryggi og betra flæði umferðar
Samkvæmt tillögunni verður Suðurlandsvegur byggður upp sem 2+2 stofnvegur á kaflanum frá Bæjarhálsi að sveitarfélagsmörkum við Mosfellsbæ. Með aðskildum akstursstefnum er dregið úr hættu á alvarlegum umferðarslysum og umferð verður skilvirkari. Einnig er gert ráð fyrir að vegtengingum verði fækkað frá því sem nú er, sem stuðlar að auknu öryggi og bættri yfirsýn í umferðinni.
Í deiliskipulaginu er lögð áhersla á að bæta aðstæður fyrir virka ferðamáta. Gert er ráð fyrir heildstæðu stígakerfi fyrir gangandi, hjólandi og ríðandi vegfarendur sem eykur öryggi og aðgengi um svæðið.
Tvöföldun Suðurlandsvegar er liður í umfangsmikilli uppbyggingu á einni af helstu samgönguæðum höfuðborgarsvæðisins. Verkefnið nær til lengri kafla vegarins, frá Reykjavík að Hveragerði, og hefur það að markmiði að bæta bæði öryggi og afkastagetu leiðarinnar til framtíðar.







