Sérstök vefsíða sett upp vegna umferðar í tengslum við almyrkvi á sólu

Lestími: < 1 mín

Vegna almyrkvans sem verður sýnilegur á Íslandi 12. ágúst 2026 er búist við mikilli umferð á ákveðnum svæðum landsins. Til að tryggja öryggi vegfarenda og greiða fyrir umferð verður gripið til tímabundinnar umferðarstýringar á nokkrum leiðum.

Vegagerðin hefur sett upp sérstaka vefsíðu með upplýsingum um fyrirhugaðar umferðarstýringar undir heitinu Almyrkvi á sólu til að gera þær sem aðgengilegastar fyrir almenning.

Umferðarstýringin hefst klukkan 12:00 þann 12. ágúst og mun standa fram yfir atburðinn, eftir því sem þörf krefur. Gera má ráð fyrir að hámarkshraði verði lækkaður þennan dag.

Megintilgangur þessara ráðstafana er að tryggja greiða leið viðbragðsaðila ef neyðartilvik koma upp, þar sem búast má við mjög mikilli umferð. Með skipulagðri umferðarstýringu er einnig leitast við að draga úr hættu á umferðarteppum og bæta öryggi allra vegfarenda.

Samstarf við viðbragðsaðila

Skipulagning og framkvæmd umferðarstýringarinnar er unnin í nánu samstarfi við lögreglu og aðra viðbragðsaðila á viðkomandi svæðum. Vegfarendur eru hvattir til að fylgja leiðbeiningum lögreglu og umferðarstjórnenda og sýna aðgát á svæðunum þegar þar að kemur.

Deila grein: