Hvað gerist ef þú blandar saman Hummer og hraðskreiðum sportbíl? Þá færðu áhugaverða samsetningu sem kallast Lamborghini LM002. Þetta tryllitæki hefur einnig fengið gælunafnið Rambo Lambo sem passar mjög vel.
Saga bílsins
Hugmyndin byrjaði árið 1977 með hugmyndabíl sem kallast Cheetah og notagildi bílsins átti að vera tengt hernaði. Bandaríski herinn átti að fá eintakið en þeir höfnuðu hugmyndinni. Seinna var svo LM001 hannaður sem hafði AMC V8 vél. Þessir tveir hugmyndabílar buðu ekki upp á frábæra aksturseiginleika utanvegar þar sem vélin var staðsett í afturenda bílsins.
Þegar kom að hönnun LM002 var ákveðið að setja V12 vél, sem kom beint úr Lamborghini Countach, í framenda bílsins. Bíllinn hóf framleiðslu árið 1986 og var hann á markaði þangað til 1993. Á þessum árum voru 301 eintök framleidd.
Einn fyrsti lúxusjeppinn
Orðið lúxusjeppi kemur víða fram í bíla heiminum í dag og eru margir bílar skilgreindir á þann hátt. LM002 er á meðal fyrstu lúxusjeppanna sem komu á markaðinn en í samanburði við Lamborghini Urus er hann eins og trukkur, miðað við nútímahugmyndir af lúxusjeppa.
Eins og nefnt var að framan hefur jeppinn 5,2 lítra V12 vél, sem skilar um 450 hestöflum og er með togkraft í kringum 500 Nm. Bíllinn eyðir svo miklu eldsneyti að tankurinn er 290 lítrar, en eyðslan er á bilinu 25 – 42 lítrar á hundraðið. Að reka slíkan bíl hér á landi væri dýrt sport.
Það væri áhugavert að fara í jeppa ævintýri á þessum bíl, spurning hvort hann myndi standast íslenskar aðstæður?







