Hátt eldsneytisverð örvar rafbílasölu

Lestími: 2 mín

Kínverski bílarisinn BYD segir eftirspurn eftir rafbílum hafa stóraukist í flestum löndum með hækkandi eldsneytisverði. Stefna fyrirtækisins um að velja rafmagnaðar samgöngur virðast vera að skila sér vel til baka. Neytendur og fyrirtæki leita í auknum mæli leiða til að lækka orkukostnað vegna bílanotkunar.

Hækkandi eldsneytisverð

Vegna óvissu á heimsmarkaði og hækkandi olíuverðs hafa margir ökumenn fengið nóg af dýru bensíni og dísilolíu. Þetta hefur leitt til þess að mælanlegur áhugi neytenda á rafbílum jókst um meira en 20% á aðeins einni viku í liðnum marsmánuði.

Kínverski bílaframleiðandinn BYD, stærsti rafbílaframleiðandi heims, svarar eftirspurninni með aukinni framleiðslu og  sókn inn á erlenda markaði. Sums staðar hefur sala aukist svo hratt að pantanir næsta mánaðar fylltust á aðeins tveimur vikum.

Hagstæðari í rekstri

Samkvæmt greiningum eru rafbílar hagstæðari í rekstri en hefðbundnir eldsneytisbílar. Rafbílar á Íslandi bera ekki vörugjald við innflutning, viðhaldskostnaður er lægri vegna færri íhluta og ekki þarf að skipta um olíu á vél. Orkukostnaður er mun minni fyrir þá sem geta nýtt sér heimahleðslu. Þrátt fyrir kílómetragjaldið er rekstur rafbíla mun hagstæðari en rekstur sambærilegra eldsneytisbíla á Íslandi.

Margt bendir til þess að neytendur óttist frekari sveiflur á eldsneytismarkaði. BYD og fleiri farmleiðendur taka þátt í breyttum kröfum á markaði og bjóða rafbíla sem keppa við bensínbíla í verði og reksturskostnaði.

Kínversk tækni ógnar gömlu bílarisunum

Kínverski bílaiðnaðurinn stendur vel að vígi í samkeppni við keppinauta víða um heim. BYD hefur tekið risastökk fram á við með nýrri rafhlöðu, Blade 2.0, sem kynnt var í mars. Blade 2.0. er framþróun á Blade 1.0 rafhlöðunni frá BYD. Blade 2.0 hefur mun meiri hleðsluhraða og þolir betur kalt loftslag. Blade 2.0 veldur óróa meðal margra bílaframleiðenda sem óttast að enn séu kínverskir framleiðendur að auka samkeppnisforskot sitt.

Ótrúleg hleðslugeta og drægni

Nýja rafhlaðan frá BYD getur tekið hleðslu frá 10% upp í 70% á aðeins fimm mínútum. Auk þess skilar hún drægni sem nemur yfir 1.000 kílómetrum, við bestu aðstæður, á einni hleðslu. Hleðsluhraðinn er þrefalt meiri en það sem dýrustu rafbílar á markaði bjóða upp á í dag.

BYD eru ekki eina kínverska fyrirtækið sem er að ná þessu forskoti með nýrri tækni. Xiaomi, NIO og XPeng bjóða einnig upp á sambærilega tækni á mjög samkeppnishæfu verði.

Forstjórar óttast um afkomuna

Viðbrögð forstjóra hefðbundinna bílaframleiðenda sýna alvarleika málsins.

Jim Farley forstjóri Ford segist vera „auðmjúkur“ gagnvart forskoti kínverskra framleiðenda.

Koji Sato forstjóri Toyota sagði í ræðu á ráðstefnu sem 484 samstarfsfyrirtæki Toyota sóttu að róttækra breytinga væri þörf. Skilaboð hans voru afdráttarlaus.  „Ef hlutirnir breytast ekki, munum við ekki lifa þetta af. Við í bílaiðnaðinum erum í harðri baráttu um tilveru okkar.“ Að sögn Koji Sato er þetta að miklu leyti knúin áfram af vaxandi samkeppni frá Kína og tækninýungum.   

Vestrænir bílaframleiðendur standa frammi fyrir tilvistarógn gagnvart kínverskri tækni sem er bæði ódýrari og í mörgum tilvikum öflugri en sú tækni sem flestir vestrænir framleiðendur bjóða.

Enn eru áskoranir til staðar

Þrátt fyrir tæknilega yfirburði eru ýmsir þröskuldar í vegi kínverskra framleiðenda. Sérfræðingar benda á að fyrirtækin eigi enn eftir að sýna fram á langtímahagnað. Þá eru ríkisstyrkir, bæði í Kína og annars staðar, síbreytilegir og pólitísk andstaða gæti aukist gagnvart kínverskum vörum meðal stjórnvalda og neytenda utan Kína.

Sveiflur í eldsneytisverði eru óáreiðanlegur hvati. Hátt eldsneytisverð getur ýtt fólki í rafbíla en sá hvati gleymist fljótt þegar verðið lækkar aftur.

Deila grein: