Skiptar skoðanir bílaframleiðanda þegar kemur að stærð margmiðlunarskjá

Lestími: < 1 mín


Skoðanir bílaframleiðanda virðist vera mismunandi þegar kemur að margmiðlunarskjám. Sumir vilja hafa stóra skjái á meðan aðrir vilja hafa þá minni. Það virðist sem svo að stórir snertiskjáir eru ráðandi þegar kemur að bílahönnun innanrýmis í dag. Teslurnar eru þekktar fyrir að hafa fáa takka og einn margmiðlunarskjá sem stjórnar flestum afþreyingar- og upplýsinga aðgerðum.

Mazda er að auka tæknilega hönnun innanrýmis þar sem nýi Mazda CX-6e kemur með löngum 26 tommu skjá og snýst innanrýmið að miklu leyti um skjáinn. Jo Stenuit, hönnunarstjóri hjá Mazda í Evrópu, talar um að með stærri skjá er allt skýrara og því auðveldara fyrir ökumann að framkvæma aðgerðir. Með stærri skjá getur farþeginn í framsætinu tekið meiri þátt í aksturs upplifuninni.

Audi tekur skref í andstæða átt og eru ekki sammála þeim hugsunarhætti að stærri skjár bætir upplifun ökumanns. Þetta er eins konar afsökun til að bæta við óþarfa tækni. Þeirra framtíðarsýn er því að minnka margmiðlunarskjáinn og fara aftur til fortíðar með því að bæta við fleiri tökkum.

Rannsóknir hafa sýnt fram á að flókin margmiðlunarkerfi getur tekið athygli ökumanns frá veginum og þannig skapað hættu. Er bíllinn að verða snjallsími á hjólum? Snýst innanrýmið meira um skemmtun eða upplifun frekar en akstur? Er hægt að fara einhvers konar milliveg?

Deila grein: