Frábærar fréttir fyrir jeppa áhugafólk. Hyundai kynnti á dögunum nýjan hugmyndabíl á bílasýningunni í New York, sem kallast Boulder. Bíllinn hefur kassalaga hönnun en sumir hafa líkt honum við Ford Bronco.
Kassalagaðir jeppar eru í tísku í dag
Kassalagaðir jeppar eru í tísku í dag og eru Hyundai að fylgja því eftir með hönnuninni á nýja hugmyndabílnum. Þrátt fyrir að lögun bílsins er kassalaga þá hefur hún straumlínulagaðar línur sem eykur fegurð bílsins. Bílaframleiðandinn kallar þessa hönnunar heimspeki ,,Art of Steel”.
Hyundai hefur ekki gefið út neinar upplýsingar varðandi stærð né lengd bílsins. Bíllinn hefur 37” dekk sem gerir hann öflugan í utanvegar akstri.
Fjórir litlir skjáir í staðinn fyrir einn stóran snertiskjá
Innanrými bílsins er mjög áhugavert, týpískt fyrir hugmyndabíl. Gírstöng bílsins er stór og mikil. Það eru fjórir litlir skjáir í staðinn fyrir einn stóran snertiskjá, sem er lúmskt flott. Í framrúðunni má finna fleiri upplýsingar eins og hraðamæli, hitastig, áttavita o.fl. Stýrið hefur takka og skrunhjól til að breyta um akstursstillingar.
Þetta er aðeins hugmyndabíll og margt sem getur breyst. Einnig gæti verið að jeppinn breytist í pallbíl.








