Nýr Hring­vegur (1) um Horna­fjörð opnar í dag

Lestími: < 1 mín

Nýr Hringvegur (1) um Hornafjörð verður opnaður formlega í dag, miðvikudaginn 24. júní, klukkan 15:00. Vígslan fer fram á nýrri brú yfir Hornafjarðarfljót. Að henni lokinni er boðið til kaffisamsætis í félagsheimilinu Holti á Mýrum þar sem öll eru velkomin.

Hringvegurinn styttist um 12 km með opnun nýja vegarins en leiðin til Hafnar styttist enn meira eða um 14,6 km. Framkvæmdin var afar umfangsmikil en lagðir voru tæpir 19 km af nýjum Hringvegi, 9 km af öðrum vegum og byggðar fjórar tvíbreiðar brýr, sem eru samtals 468 m langar. Einnig var gerður áningarstaður og hringtorg við Hafnarveg.

Aðdragandi verksins var langur en fyrstu áætlanir voru lagðar fram árið 2004. Fyrsti áfangi var boðinn út 2017 og fólst í gerð 5 km langrar vegfyllingar. Annar áfangi var boðinn út 2021 en öllum tilboðum hafnað. Árið 2022 var verkið boðið út að nýju sem samvinnuverkefni með framkvæmd og framkvæmdafjármögnun. Tilboð voru opnuð 17. maí 2022 og samið við Ístak 14. júlí 2022. Framkvæmdir hófust þá um haustið.

Hringvegurinn styttist um 12 km en vegarkaflinn frá Mýrum að hringtorgi við Hafnarveg styttist enn meir. Sá kafli er í dag 28,3 km en verður um 13,7 km með nýjum vegi og styttist því um 14,6 km. Því má gera ráð fyrir að vegfarendur verði um 15 til 20 mínútum fljótari að aka þessa leið.

Ákveðið hefur verið að hefja ekki gjaldtöku fyrr en 1. september í ár. Stakt gjald fyrir ökutæki undir 3,5 tonnum  verður 1.500 krónur, 2.100 krónur fyrir millistóra bíla frá 3,5 til 7,5 tonnum og 4.500 krónur fyrir bíla yfir 7,5 tonnum. Gjaldið miðast við heildarþyngd ökutækja. Afsláttarkjör verða fyrir litla og millistóra bíla og þak sett á mánaðarlegar greiðslur.

Deila grein: