Umferðin á Hringveginum í maí dróst lítillega saman miðað við sama mánuð fyrir ári. Þótt samdrátturinn nú sé lítill er afar óvenjulegt að umferð minnki þrjá mánuði í röð eins reyndin er nú í ársbyrjun 2026. Hagi umferðin sér eins og í meðalári má búast við um þriggja prósenta meiri umferð í ár, en ef samdráttarþróunin helst áfram gæti það breyst að því er fram kemur í tölum frá Vegagerðinni.
Umferð milli mánaða 2025 og 2026
Nú er áætlað að umferð hafi dregist saman um 0,5% milli maí mánaða 2025 og 2026, yfir 16 lykilteljara á Hringvegi. Umferð dregst saman í þremur svæðum af fimm og mest um Suðurland eða um 3,2%. Umferð eykst talsvert um Norðurland eða um 4%.
Af einstaka talningasniðum mælist mesti samdrátturinn um Hringveginn við Hvolsvöll eða um 5,2%. Mest eykst umferð um mælsnið í Kræklingahlíð, norðan Akureyrar, eða um tæp 6%.
Maí mánuður er þriðji mánuðurinn í röð, þar sem teljarar Vegagerðarinnar sína samdrátt í umferð á Hringveginum. Það er ekki óalgengt að umferð dragist saman milli ára í einstaka mánuðum, en sjaldgæft að það gerist þrjá mánuði í röð. Þegar slíkt hefur gerst hefur það gjarnan verið verið vísbending um samdrátt í hagkerfinu.
Frá áramótum
Nú er uppssafnaður ökutækjafjöldi, frá áramótum, aðeins 0,3% meiri en hann var á síðasta ári. Þetta er minnsta aukning í um 6 ár.
Uppsöfnuð umferð er minni um Suðurland, Vesturland og Austurland, en á sama tíma á síðasta ári, en jákvæðu megin við núllið um og við höfuðborgarsvæðið og Norðurland.
Umferð eftir vikudögum
Frá áramótum er mest ekið á föstudögum en minnst á laugardögum.
Umferð hefur aukist á þriðju-, miðviku-, og sunnudögum, að meðaltali um rúm 2%, en dregist saman aðra vikudaga um rúmt eitt prósentustig, að meðaltali.







