Samdráttur í umferð á Hringvegi heldur áfram

Lestími: 2 mín

Umferðin í nýliðnum apríl dróst saman um 8,4 prósent sem er mikill samdráttur þótt hann sé ekki eins mikill og í mars. Nú hefur umferðin frá áramótum á Hringveginum dregist saman um 3,4 prósent. Útlit er fyrir að árið í heild, ef umferðin hagar sér eins og í meðalári, endi með lítilli aukningu, líklega um eða undir einu prósenti. Þetta kemur fram í tölum frá Vegagerðinni.

Milli mánaða
Annan mánuðinn í röð dregst umferð mikið saman á Hringvegi, sé miðað við sama mánuð á síðasta ári. En umferðin í nýliðnum mánuði drógst saman um 8,4%, sem er umtalsverður samdráttur þó hann sé ekki jafn mikill og í mars.

Umferð dróst saman á öllum svæðum, mest um Suðurland eða um 17,1% og minnst um Norðurland eða um 3,0%.

Allir teljarar, fyrir utan í Kræklingahlið og á Fagradal, sýndu samdrátt.  Sérstaka athygli vekur að stærsti samdrátturinn er um mælisnið á Geithálsi, en þar dróst umferðin saman um 22,6%.  Umferðin jókst hins vegar um 6,4% yfir teljara á Fagradal, sem er ,,úr takt“ við aðrar staði landsins.

Frá áramótum
Núna hefur umferðin dregist saman um 3,4%, frá áramótum, sé hún borin saman við sama tímabil á síðasta ári.  Leita þarf aftur til Covid-ársins 2020 til að finna meiri samdrátt miðað við árstíma.

Umferð hefur dregst saman í þremur af fimm landssvæðum, mest yfir teljara, sem staðsettir eru við og á höfuðborgarsvæðinu, eða um 5,1% en minniháttar aukning mælist um Vestur- (0,2%) og Norðurland (0,3%).

Umferð eftir vikudögum
Mest er ekið á föstudögum, það sem af er árs, en minnst á laugardögum.

Frá áramótum hefur umferð dregst saman í öllum vikudögum utan miðvikudaga (1,09%). Mest hefur umferð dregist saman á mánudögum (7,60%).

Horfur út árið 2026
Ef umferðin hegðar sér líkt og í meðalári, það sem eftir lifir árs,  er gert ráð fyrir mjög lítilli aukningu, miðað við síðasta ár eða rétt um og undir 1%.

Deila grein: