Einkabíllinn er þarfasti þjónninn í ferðamáta á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í niðurstöðum Gallup-könnunar sem kynntar voru á ráðstefnu á Hótel Hilton um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu í morgun undir yfirskriftinni Greiðari leið – Hugmyndir óskast.
Þeim sem ferðast með einkabílnum hefur fjölgað á höfuðborgarsvæðinu síðustu ár, meðan þeim sem kjósa aðra ferðamáta fækkar. Fæstir telja að lausnir samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins breyti sínum ferðavenjum og enn færri að áætlanir hans standist.
Þá kom einnig fram að umferð um höfuðborgarsvæðið þyngist sífellt því þeim fjölgar sem kjósa einkabílinn sem sinn helsta ferðamáta. Ferðatími frá Hafnarfirði að Háskóla Íslands þegar skólar hefja göngu sína á haustin er sá sami með bíl og með hjóli.
Helmingur íbúa ferðast helst sem bílstjóri í einkabíl
Önnur Gallup könnun fyrir Eflu og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sýndi að nærri helmingur íbúa ferðast helst sem bílstjóri í einkabíl og 17% sem farþegi. Hlutfall þeirra sem aka helst sjálfir hækkaði um 7% milli 2019 og 2022.
Konráð Guðjónsson hagfræðingur hjá Kontext kynnti niðurstöður hennar. 57% sögðust telja að lausnir samgöngusáttmálans myndu breyta litlu fyrir sínar ferðavenjur og 66% höfðu ekki trú á að áætlanir hans myndu standast. 19% höfðu mikla trú á að lausnir sáttmálans myndu breyta sínum ferðavenjum og 18% voru bjartsýnir á að áætlanir stæðust.
Í hverri viku frá 2019 hafi bílum fjölgað um 50, fólki um 80 og skráðum ökutækjum um 60. Á hverju heimili séu að meðaltali 1,6 bílar og 1,9 fullorðnir.







