Tesla hefur hafið framleiðslu á sjálf keyrðum bílum á fimmta stigi, sem kallast Cybercab. Framleiðslan fer fram í verskmiðju bílaframleiðandans í Texas. Bíllinn keyrði alveg sjálfur út úr verksmiðjunni, án ökumanns. Hins vegar er löglegi þátturinn erfiður eins og er fyrir þessu verkefni þar sem sjálfkeyrðir bílar, án hefðbundinna stjórntækja, eru ekki enn löglegir á veginum.
Cybercab er ekki hefðbundinn bíll, heldur er hann hannaður sérstaklega með það í huga að vera sjálfkeyrandi farartæki. Það vantar öll hefðbundin stjórntæki sem finna má í lang flestum bifreiðum í dag eins og stýri, pedalar, gírstöng o.s.frv. Það er helsta ástæðan af hverju bíllinn er ólöglegur á veginum. Tesla getur því komist fram hjá því með því bæta við hefðbundnum stjórntækjum og þá sérstaklega stýri.
Hönnun bílsins er svipuð og Tesla Model S nema það eru engir hliðarspeglar, en þörfin er ekki til staðar. Það er samt sem áður smá skrítið þar sem hliðarspeglar eru stór þáttur í útlitshönnun bíla.
Heimildir varðandi drægni bílsins eru ekki alveg áreiðanlegar en talað er um að bíllinn hafi allt að 320 – 480 km drægni. Einnig hefur verið nefnt að bíllinn hafi ekki hefðbundið hleðslutengi, heldur keyri yfir hleðslumottu og hlaðar sig þannig. Tesla er að reyna að gera ferlið eins skilvirkt eins og hægt er og að fólk þurfi lítið að koma að ferlinu.
Fyrir markaðinn er þetta áhugavert þar sem Waymo eru taldir vera stærstir í sjálfkeyrandi bílum á þessari stundu. Tesla mun því berjast við Waymo og fleiri fyrirtæki á þessum markaði með tilkomu Cybercab, ef þeir koma honum á götuna.







