Nýr hugmyndabíll frá Smart – endurkoma smábílsins?

Lestími: < 1 mín


Bílaframleiðandinn Smart kom fyrst á markað með smábíl, sem hét því skemmtilega nafni ForTwo. Á síðustu árum hafa þeir farið meira út í hönnun stærri fólksbíla og var hætt að framleiða ForTwo árið 2022. Núna eru þeir að endurkynna smábílinn og verður kynntur sem Concept #2 en mun sennilega fá nafnið #2 í Smart línunni.

Hugmyndabíllinn verður ekki bein endurgerð af hinum gamla ForTwo en verður frekar uppfærð útfærsla með framtíðar útliti. Notagildið er klárlega hugsað fyrir stórborgir þar sem stæði eru þröng og mikil traffík ríkir. Ekki er vitað nákvæmlega hversu stór bíllinn verður en það má gera ráð fyrir því að hægt sé að koma tveimur Concept #2 í eitt stæði. Hann kemur með tveimur hurðum og er ekki búist við miklu plássi í bílnum.

Hönnun hugmyndabílsins er áhugaverð en spegillinn, ljósin og efri hluti bílsins er gylltur. Sennilega mun hönnunin breytast þegar loka afurðin verður kynnt, hvenær sem það verður.

Concept #2 mun vera 100% rafmagnsbíll og er áætluð drægni í kringum 300 km. Það er mun meira en eldri tegundir. Hleðslan verður einnig hraðari en áður og tekur það í kringum 20 mínútur að hlaða úr 10% í 80%. Það er ekki gefið upp hversu kraftmikil rafhlaðan verður.

Þessi bíll getur verið hentugur fyrir fólk sem býr í stórborgum og þar sem rekstur á rafmagnsbíl er ekki of dýr.

Deila grein: