Innanrými nýja Mercedes C-Class má líkja við geimskip

Lestími: < 1 mín


Þýski bílaframleiðandinn Mercedes Benz er að kynna nýjan C-Class sem verður 100% rafmagnsbíll, núna á næstunni. Bílaframleiðandinn hefur birt myndir af innanrými bílsins og það lítur hreinlega út eins og stjórnborð í geimskipi

Það fyrsta sem tekur á móti manni er risastór skjár sem nær þvert yfir allt, frá ökumanni til farþegans í framsætinu. Þessi skjátækni kallast MBUX ofurskjár (e. Hyperscreen) og hefur verið í þróun hjá Mercedes um tíma og má m.a. finna í öðrum bílum bílaframleiðandans.

Mercedes að stækka sinn margmiðlunarskjá

Á meðan sumir bílaframleiðendur eru að minnka margmiðlunarskjáinn þá eru Mercedes heldur betur að stækka sinn. Skjárinn sýnir þær helstu upplýsingar og aðgerðir sem ökumaður þarf eins og hraðamæli, snúningshraða, hitastillingu, tónlistarspilun o.s.frv.

Stýrið er úr leðri og hefur grip fyrir ökumanninn sem bætir aksturs þægindi. Það eru einnig einhverjir hnappar á stýrinu sem hafa mismunandi aðgerðir til þess að auðvelda lífið fyrir ökumanninn.

Það má einnig finna fleiri atriði eins og rafmagns sæti, hleðslu fyrir síma og glasahaldara. Sætin koma með nudd stillingum og hita. Bíllinn kemur með Panorama þaki sem hefur frægu Mercedes stjörnurnar í glerinu.

Það má finna mikinn lúxus í innanrými C-Class og er þetta að öllu leyti flottasta og dýrasta útfærslan af bílnum. 

Deila grein: