Fyrsta skipið með stálbitum í Ölfusárbrú kom til Þorlákshafnar um páskana. Skipið sigldi frá Gdansk en stálbitarnir eru framleiddir í verksmiðjum Norvik í Póllandi. Í þessari ferð kom um helmingur af þeim bitum sem notaðir verða í burðargrind nýju brúarinnar.
Allt burðarkerfi brúarinnar verður úr stáli. Bitarnir sem komu til landsins eru engin smásmíði, tveggja metra háir og um 20 metra langir, þyngstu einingarnar vega um 40 tonn. Stærstu kranar landsins voru notaðir til að hífa þá upp úr skipinu á volduga flutningabíla sem fluttu stálið að kvöldlagi, í lögreglufylgd, á verkstað.
Í þessu fyrsta skipi komu um helmingur af þeim bitum sem notaðir verða í burðargrind brúarinnar. Allir bitarnir eru komnir á verkstað og hafin er vinna við að stilla þeim upp fyrir samsetningu.







