Ný ljós í Hval­fjarðar­göng­um og breyttur hámarks­hraði

Lestími: < 1 mín

Framkvæmdir við endurnýjun lýsingar í Hvalfjarðargöngum hófust fyrir rúmri viku. Verkið hefur gengið vel hjá verktakanum og kveikt hefur verið á hluta nýju lýsingarinnar við suðurenda ganganna. Vegfarendum er bent á breyttan hámarkshraða við Hvalfjarðargöng meðan framkvæmdir standa yfir að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Rafmenn ehf. eru verktakar framkvæmdarinnar. Þeir eru að vinna sig í gegnum göngin að sunnan en nú þegar er búið að taka niður 450-500 lampa og setja upp 56 nýja auk vinnulýsingar sem kemur tímabundið í stað þeirra lampa sem búið er að taka niður.

Búið er að taka niður 3.400 m af strengjum og draga í 2.800 m af nýjum strengjum. Þá er búið að setja upp 130 ný „driver“-box. Vegfarendur geta nú þegar séð hvernig breytingin kemur til með að líta út þar sem búið er að kveikja á hluta daglýsingar í suðurenda ganganna.

Breyttur hámarkshraði við Hvalfjarðargöng

Um helgina tók gildi breyttur hámarkshraði við Hvalfjarðargöng að sunnanverðu. Hámarkshraði hefur verið lækkaður úr 70 km/klst. í 50 km/klst. á um 500 metra kafla, frá gangamunna að fyrsta útskoti að sunnanverðu. Breytingin gildir í báðar akstursáttir. Ástæða þessarar breytingar er skert lýsing í gangamunnanum vegna framkvæmdanna.

Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og virða nýjar hraðatakmarkanir.

Vinna er hafin við að taka niður og skipta um ljós í Hvalfjarðargöngunum.
Deila grein: