43 prósent landsmanna eru andvíg því að innheimta veggjöld til að standa straum af rekstri þjóðvega. 37 prósent eru því fylgjandi. Andstaðan vex milli ára.
Andstaða við innheimtu veggjalda til að standa straum af rekstri þjóðvega hefur aukist síðasta árið, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu. Á sama tíma hefur dregið úr stuðningi við slíka gjaldtöku.
43 prósent landsmanna lýsa sig mjög eða frekar andvíg veggjöldum, fjórum prósentustigum meira en á síðasta ári. Þeim sem eru fylgjandi innheimtunni hefur fækkað úr 42 prósentum í 37 prósent.
Í sjötta sinn sem afstaða fólks til veggjalda er könnuð
Þetta er í sjötta skipti sem Maskína kannar afstöðu fólks til veggjalda. Í fimm af sex skiptum hafa andstæðingar þeirra verið fleiri en stuðningsmenn þeirra. Eina undantekningin var í fyrra þegar fylgjendum veggjalda fjölgaði mjög milli ára en andstæðingum fækkaði nokkuð.
Norðlendingar eru líklegastir til að styðja innheimtu veggjalda (47 prósent) en Austlendingar, Sunnlendingar og Reykjanesmenn eru mest á móti þeim (56 prósent).
Stuðningur við veggjöld er meiri en andstaða meðal fylgismanna Framsóknarflokksins, Samfylkingarinnar, Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar. Litlu munar á fylkingum meðal Vinstri grænna og Pírata. Líklegastir til að vera á móti eru kjósendur Flokks fólksins, Miðflokksins og Sósíalista. Reyndar mælist 100% andstaða við veggjöldin meðal Sósíalista.







