Hvenær lækkar eldsneytisverð?

Lestími: 2 mín

Heimsmarkaðsverð á eldsneyti hefur hækkað hressilega frá því að átökin í Íran hófust 28. febrúar sl.  Heimsmarkaðsverð á hráolíu (Brent) var í upphafi árs um 62 USD á tunnu en var komið í ríflega 118 USD þann 31. mars sl. Þann 8. apríl var komið á vopnahléi í tvær vikur. Hráolíuverð lækkaði í kjölfarið  en hefur sveiflast mikið síðan. Verðið hefur farið niður tengt  væntingum um frið en einnig upp þegar ótti vex um stigmögnun átaka. Þegar þetta er ritað er Brent hráolían að flökta í kringum 95 USD á tunnu.

Hér á landi hefur eldsneytisverð verið að hækka reglulega liðna 50 daga. Dýrast er bensínið í dag hjá N1 eða  252,70 lítrinn. Olís er með hæsta dísilverðið eða 294,40 krónur lítrinn. Ódýrast er eldsneytið hjá Costco. Bensínið hjá Costco er á 215 krónur og dísillítrinn á 261,30 krónur. Lítri af bensíni hjá Orkunni (lægsta verð) er 4 krónum yfir Costco og dísillinn einnig 4 krónum dýrari. Mestar hækkanir hafa verið hjá Costco, bensínlítrinn hefur hækkað um 46,9 krónur og dísillítrinn um 72 krónur.  Að meðaltali hefur bensínlítrinn hjá söluaðilum hækkað um ríflega 37 krónur frá marsbyrjun og dísillítrinn um rúmlega 63 krónur. Síðasta verðhækkun á eldsneyti hér á landi var  föstudaginn 16. apríl hjá Costco. Fram að 27. mars sl. var bensín- og dísilolíulítri um og yfir 15 krónum ódýrari hjá Costco samanborið við Orkuna (lægsta verð).

Kostnaðarverð bensín- og dísilolíulítra á heimsmarkaði í íslenskum krónum á lítra hefur sigið niður í svipað verð og var um miðjan mars. Þá var meðalverð á bensíni um 20 krónum undir verðinu í dag og dísillítrinn að meðaltali um 40 krónum undir.

Lækkun virðisaukaskatts og eftirlit

Ríkisstjórn Íslands boðar tímabundna lækkun virðisaukaskatts af eldsneyti úr 24% niður í 11% frá 1. maí til 31. ágúst 2026. Samkeppniseftirlitið á einnig að fá auknar valdheimildir til að fylgja því eftir að lækkunin skili sér til neytenda. Viðskiptaráð hefur mótmælt auknu aðhaldi ríkisins og varar við verðstýringu og auknum valdheimildum Samkeppniseftirlitsins. FÍB fagnar lækkun virðisaukaskatts og er hlynnt þessum auknu valdheimildum til Samkeppniseftirlitsins. Á stærri og þróaðri mörkuðum í Norður Evrópu er eldsneytismarkaðurinn undir vökulu eftirliti stjórnvalda enda eldsneyti drjúgur þáttur  í neyslu almennings og fyrirtækja með tilheyrandi áhrifum á verðbólgu og verðlag.

Lækkun  á virðisaukaskatti á eldsneyti úr 24% í 11% kemur þannig út miðað við núverandi lítraverð frá dælu:  

BensínDísilolía
N1Orkan*OlísAtlantsolía*
Með 24% VSK252,70219,00294,40265,40
Með 11% VSK226,22196,05263,55237,59
Lækkun:26,4822,9530,8527,81
*Lægsta verð

FÍB heldur úti daglegu eftirliti með olíuverði á heimsmarkaði og útsöluverði hér á landi. FÍB hefur gagnrýnt háa álagninga á íslenska olíumarkaðnum síðustu árin. Þessa þróun má einnig sjá við greiningu ársreikninga félaganna á markaði.

Ef fyrirtækjum með sögu um samráð er ekki treystandi til þess að skila sanngjörnu vöruverði þá er eðlilegt að stjórnvöld grípi til aðgerða til að verja stöðu neytenda. Einokun og fákeppni heldur framboði vöru undir eðlilegri eftirspurn. Afleiðingin er hærra verð vegna hærri álagningar. Þegar samkeppni vantar minnkar hvatinn til að bæta reksturinn eða lækka kostnað. Fákeppni skekkir markaðinn og bitnar á neytendum.

Deila grein: