Skrifstofa FÍB lokar klukkan 15.30 í dag vegna almyrkva á sólu sem nær yfir vestanvert landið nú síðdegis. Þetta er gert til að starfsmenn og almenningur geti notið þessa sjaldgæfa náttúrufyrirbæris í öryggi, en hámark myrkvans á höfuðborgarsvæðinu og á vestanverðu landinu ber upp á um kl. 17:43 til 17:50
Vegna almyrkvans í dag, 12. ágúst, má búast við mikilli umferð víða á vestanverðu landinu, sérstaklega á þeim stöðum þar sem myrkvinn stendur hvað lengst yfir. Til að tryggja öryggi vegfarenda og greiða fyrir umferð verður tímabundin umferðarstýring á nokkrum vegum að því fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Sjá má á vef Vegagerðarinnar, Almyrkvi á sólu, hvernig umferðarstýringu verður háttað víða á vestanverðu landinu. Mest verður um að ræða einstefnu inn á tiltekin svæði. Að loknum almyrkvanum verður þeim flestum aflétt.







