Samgöngustofa boðaði til Umferðarþings 2026 sem staðið hefur yfir í Gamla Bíói í Reykjavík í dag. Yfirskrift þingsins í ár var „Ungt fólk og umferðin“. Raddir og sjónarmið yngri vegfarenda fengu aukið vægi, meðal annars varðandi viðhorf þeirra til öryggis, regluverks og eigin hegðunar í umferðinni.
Farið var yfir tölfræði og áhættuþætti er varða unga ökumenn og vegfarendur, en sá hópur hefur sögulega verið í meiri hættu á að lenda í alvarlegum umferðarslysum.
Sérfræðingar deildu þekkingu sinni og reynslu með áherslu á unga vegfarendur
Sérfræðingar frá ólíkum sviðum tengdum umferðaröryggi deidu þekkingu sinni og reynslu með áherslu á unga vegfarendur. Ungmenni á grunn- og menntaskólaaldri sögðu frá reynslu sinni í umferðinni sjálfri og hvernig þau upplifa hana. Fundargestir fengu innsýn í hugarheim þeirra og hugmyndir um hvernig hægt sé að stuðla að öruggari umferð.
Þá voru ennfremur m.a. flutt eriendi um breytingar á ökunámi og þróun og upplifun lögreglunnar á ungu fólki í umferðinni. Þá sérstaklega um breytta ferðavenjur ungs fólks, svo sem notkun rafhlaupahjóla.
Umferðarþingið er vettvangur fyrir faglegt samtal, miðlun þekkingar og skoðanaskipti um umferðaröryggi og samgöngur. Þingið sátu sem hafa áhuga á öruggri og ábyrgri þátttöku í umferðinni og vilja leggja sitt af mörkum til jákvæðrar þróunar í umferðaröryggismálum.
Öruggar samgöngur vera eitt helsta markmið samgönguáætlunar
Eyjólfur Ármannsson, innviðarráðherra, ávarpaði þingið og sagði að réttilega séu áhyggjur í samfélaginu í kjölfar þeirra alvarlegu slysa og banaslysa sem orðið hafa í umferðinni það sem af er ári. Ráðherra telur að ná þurfi til hóps ungmenna sem stundar ofsaakstur og ekki síður til þeirra sem setjast upp í bíl hjá þeim sem aka of hratt.
Eyjólfur sagði öruggar samgöngur vera eitt helsta markmið samgönguáætlunar og að umferðaröryggi verði ekki tryggt einvörðungu með lögum, heldur í sameiningu og með samræðum.







