Ráðamenn Vegagerðarinnar og Betri samgangna lesa stórfelldan niðurskurð til framkvæmda í vegagerð út úr nýbirtu fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar, niðurskurð upp á samtals 4,4 milljarða króna. Hjá Vegagerðinni er boðaður 2,4 milljarða króna niðurskurður. Hjá Betri samgöngum, fyrirtæki ríkisins og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, er boðaður tveggja milljarða króna niðurskurður, samkvæmt upplýsingum frá fulltrúum þeirra. Þetta kemur fram í umfjöllun á visir.is um málið.
Áformin mæta harðri gagnrýni
Þessi áform mæta harðri gagnrýni, meðal annars frá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB. Gagnrýni FÍB og bíleigenda snýr fyrst og fremst að því að á sama tíma og vegafé er skorið niður, séu álögur auknar. Í frumvarpinu er boðuð 15,9% hækkun á kílómetragjaldi og áætlar ríkissjóður að innheimta um 89 milljarða króna í heildina af ökutækjum og eldsneyti. Gagnrýnendur telja það skjóta skökku við að rukka vegfarendur meira án þess að peningarnir skili sér beint í að bæta öryggi og ástand veganna. FÍB hefur ítrekað bent á að langvarandi skortur á fjármagni leiði til þess að vegakerfið grotni niður.
2,4 milljarðar minna til nýframkvæmda og viðhalds
Að sögn Guðmundar Vals Guðmundssonar, framkvæmdastjóra þróunarsviðs Vegagerðarinnar, var í fjármálaáætlun og samgönguáætlun gert ráð fyrir 34,8 milljörðum króna til nýframkvæmda og viðhalds á árinu 2027. Núna sé í fjárlagafrumvarpinu gert ráð fyrir 32,4 milljörðum króna á næsta ári, um 2,4 milljörðum króna minna.
Framlag til Betri samgangna lækkar
„Framlag ríkisins til Betri samgangna er lækkað um tvo milljarða tímabundið árið 2027, samkvæmt frumvarpinu,“ segir Þorsteinn R. Hermannsson, framkvæmdastjóri Betri samgangna í samtali við visir.is.
„Það gæti tafið upphaf hluta þeirra framkvæmda sem áætlað var að hefja á næsta ári. Við erum að skoða vandlega hvaða áhrif þetta hefur og munum uppfæra áætlanir okkar næstu vikur,“ segir Þorsteinn.
Hann segir stærstu framkvæmdir, sem áætlað var að hefja á árinu 2027, vera Sæbrautarstokk og fleiri leggi í fyrstu lotu Borgarlínu.
Hærri fjárhæðir eru ætlaðar til vegakerfisins og vetrarþjónustu í samgönguáætlun núverandi ríkisstjórnar en í tillögu fyrri ríkisstjórnar. Núverandi ríkisstjórn stefnir jafnframt að því að hefja framkvæmdir við Fljótagöng árið 2027 og undirbúa fleiri jarðgöng.
,,Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir þetta sýna að núverandi ríkisstjórn setji samgöngur í forgang þótt hún dragi úr ríkisútgjöldum á öðrum sviðum. „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum,“ segir Eyjólfur á visir.is
Samgönguáætlun núverandi ríkisstjórnar gerir ráð fyrir 172,8 milljörðum króna til viðhalds og framkvæmda á vegakerfinu á árunum 2026 til 2030.Tillaga fyrri ríkisstjórnar gerði ráð fyrir 135,8 milljörðum króna í sama tilgangi á árunum 2024 til 2028.






