Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og forsvarsmenn Eyjaganga undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um samstarf um könnun á fýsileika jarðganga milli lands og Vestmannaeyja. Markmiðið er að skapa grundvöll fyrir áframhaldandi rannsóknir og greiningar í tengslum við verkefnið að því er fram kemur á vef stjórnaráðsins,
Viljayfirlýsingin kveður á um að Eyjagöng ehf. beri ábyrgð á og fjármagni heildstæðar fýsileikarannsóknir, sem m.a. taka til jarðfræðilegra og tæknilegra forsendna, umhverfisþátta, umferðarspár og fjárhagslegrar uppbyggingar verkefnisins. Ríkið mun styðja við undirbúninginn með miðlun gagna og greininga, ráðgjöf um leyfismál og samvinnu um tengingu við vegakerfi landsins.
„Það er ánægjulegt að heimamenn í Eyjum hafi tekið frumkvæði að því að fjármagna og leiða svo umfangsmiklar rannsóknir. Það er mikilvægt að ríkið greiði götu verkefnisins á þessu stigi og það gerum við með faglegu samstarfi, miðlun gagna og ráðgjöf,“ segir Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra.
Félagið Eyjagöng ehf. var stofnað til að rannsaka fýsileika þess að gera jarðgöng til Vestmannaeyja sem feli í sér allt í senn hönnun, fjármögnun, byggingu og rekstur jarðganganna. Að félaginu standa sveitarfélög, fyrirtæki og aðrir fjárfestar.
Eyjagöng hafa þegar hafið þrepaskiptar jarðrannsóknir sem verða grundvöllur upplýstrar ákvörðunar um hvort og hvernig ráðist skuli í slíka framkvæmd. Áætlað er að rannsóknir standi yfir á næstu tveimur árum.
Mynd: Haraldur Pálsson framkvæmdastjóri Eyjaganga, Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og Árni Sigfússon stjórnarformaður Eyjaganga.






