Fyrir 18 mánuðum kynntu Toyota og Waymo stefnumótandi samstarf og hafa tekið höndum saman að þróa saman sjálfkeyrandi leigubíl. Waymo einmitt sérhæfir sig í sjálfkeyrandi tækni og hefur verið að þróa sjálfkeyrandi leigubíla í nokkur ár. Samstarfið mun eiga sér stað í Japan þar sem Toyota mun útvega bZ4X og Waymo sér um sjálfkeyrandi tæknina.
Upphafið að fyrstu sjálfkeyrandi leigubílaþjónustunni í Japan
Þetta samstarf verður upphafið að fyrstu sjálfkeyrandi leigubílaþjónustunni í Japan sem nýtir heimasmíðaðra bíla. Á næsta ári munu Toyota og Waymo framkvæma allskonar prófanir á hinum sjálfkeyrandi Toyota bZ4X í Japan. Bíllinn verður smíðaður í Takaoka verksmiðjunni í Toyota borginni í Japan. Í stað þess að smíða bZ4X á einum stað og láta Waymo setja upp vélbúnaðinn á öðrum stað, þá mun allt ferlið fara fram undir sama þaki.
Hinn sjálfkeyrandi bZ4X mun fá fjölda uppfærslna. Samkvæmt Toyota hefur hann verið hannaður með aukin þægindi og aðgengi í huga, þar sem sérstök áhersla er lögð á aftursætin. Bíllinn verður búinn eiginleikum sem ekki er að finna í hefðbundna bZ4X, svo sem sjálfvirkum hurðum.
Þegar prófunum verður lokið í Japan má gera ráð fyrir að sjálfkeyrandi floti Toyota bZ4X verði tekinn í notkun. Ef það gengur vel mun verða aðrir markaðir sennilega einnig skoðaðir.







