Þetta er nýi Aston Martin blæjubíllinn Valhalla Spider. Hann er sportlegur, hraðskreiður og töffaralegur, en sennilega ekki bestur fyrir íslenskar aðstæður.
Aston Martin afhjúpaði bílinn á dögunum og fékk jákvæð viðbrögð. Hann er fyrsti blæjubíllinn þar sem vélarrýmið er staðsett fyrir miðju bílsins og jafnframt sá hraðskreiðasti sem bílaframleiðandinn hefur framleitt hingað til.
2,5 sekúndur frá kyrrstöðu í hundraðið
Valhalla Spider er tengitvinnbíll. Undir vélarhlífinni má finna 4,0 lítra V8 vél með tveimur túrbínum og þremur rafmótorum, sem framleiðir 1.064 hestöfl og 1.100 Nm togkraft. Þetta er algjört skrímsli en hann er 2,5 sekúndur frá kyrrstöðu í hundraðið og er hámarkshraðinn 350 km/klst.
Bíllinn er byggður á léttri koltrefja grind sem Aston Martin hefur þróað með þekkingu úr Formúlu 1. Til að tryggja bæði hámarksafköst og þægindi þegar keyrt er þaklaust er Valhalla Spider útbúinn sérhönnuðum vindbrjót. Snjöll hönnunin beinir loftinu efri brún framrúðunnar yfir farþega og innanrými bílsins svo þeir finna sem minnst fyrir vindstrengjum, en á sama tíma beinist vindurinn einnig niður að loftinntaki vélarinnar sem kælir hana.
Nýtt koltrefja sæti sem kallast ,,Touring Seat” kemur einnig með bílnum. Sætið er hannað til að hámarka fyrir þægindi ökumanns og farþega. Þrátt fyrir lélegt gengi í Formúlu 1 er gaman að sjá að þeir kunna enn að framleiða hraðskreiða og flotta sportbíla.







