Mjög vel gekk að draga 330 m langa og 2000 tonna þunga brúargrind af austari bakka Ölfusár yfir á vestari bakkann á dögunum. Við færsluna voru notaðir öflugir vökvadrifnir tjakkar sem drógu brúargólfið áfram eftir sérstökum dráttarlegum. Brúargrindin hvíldi á púðum og rann þannig eftir sléttum stálplötum til að koma í veg fyrir skemmdir á yfirborði stálbitanna.
Tjakkarnir drógu brúargólfið áfram um hálfan metra í einu og er áætlað að hægt verði að færa það um tíu metra á klukkustund við bestu aðstæður en öll aðgerðin tók mun styttri tíma en búið var að áætla að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Til að styðja við brúargólfið á meðan það var dregið yfir ána var komið fyrir stóru bráðabirgðamastri ofan á því. Frá mastrinu lágu stálkaplar sem héldu uppi fremri enda brúargólfsins meðan á færslunni stóð.
Framkvæmdir hófust á síðasta ári en ný brú yfir Ölfusá verður 330 metra löng og 19 metra breið stagbrú og eru verklok áætluð árið 2028.







