Mikill vöxtur hefur verið hjá Skoda undanfarin ár, en árið 2025 afhenti bílaframleiðandinn alls 1.043.900 bíla til viðskiptavina um allan heim, sem er 12,7% aukning milli ára og besti árangur merkisins síðustu sex ár. Í Evrópu afhenti Skoda 836.200 bíla og varð þar með þriðja söluhæsta bílamerki á Evrópumarkaði.
Hröð rafvæðing reyndist vera undirstaða þessa árangurs
Hröð rafvæðing reyndist vera undirstaða þessa árangurs. Afhendingar rafbíla tvöfölduðust í 174.900 bíla, og tengiltvinnbílar voru 43.800. Mikil eftirspurn eftir rafbílunum Elroq og Enyaq lyfti Skoda í fjórða sæti meðal rafbílaframleiðenda í Evrópu. En Elroq átti góðu gengi að fagna og var valinn bíll ársins í flokki rafdrifinna fjölskyldubíla 2025 af WhatCar?
Octavia hélt stöðu sinni sem söluhæsta gerð Skoda á heimsvísu með 190.300 afhendingar, á eftir komu Kodiaq, Kamiq og Fabia. Þýskaland var áfram stærsti markaður Skoda, en mikill vöxtur var einnig á Indlandi þar sem markaðshlutdeild Skoda nánast tvöfaldaðist.
Nýi rafbíllinn Elroq lagði grunninn að nýju sölumeti
Samkvæmt upplýsingum frá Heklu, sem er umboðsaðili Skoda á Íslandi, var einnig mikill vöxtur hjá Skoda hér á landi árið 2025. Nýi rafbíllinn Elroq lagði grunninn að nýju sölumeti hjá Skoda þegar það kom að rafbílum. Viðtökur við nýliðanum sem kallaður hefur verið “litli bróðir Skoda Enyaq” fóru fram úr björtustu vonum enda um frábæran bíl að samkvæmt Jóni Kristóferi S. Jónssyni, vörumerkjastjóra Skoda á Íslandi.
Síðar á árinu 2026 mun Skoda svo kynna tvær nýjar alrafmagnaðar gerðir, Epiq og Peaq, sem munu þar með tvöfalda rafbílaframboð merkisins.






