Flestir myndu sennilega fljúga frá Evrópu til Japans, en ekki Renan Favigny sem er franskur Youtube bloggari og keyrði frá París til Tókýó á gömlum Peugeot 104. Renan er mikill ævintýramaður og elskar góða áskorun. Megin markmiðið ævintýrisins var að sýna að það er hægt að fara í ferðalag á ódýran máta.
Ferðalagið byrjaði ekki vel en á öðrum degi sprakk á einu dekkinu hjá Renan og á þriðja degi lenti hann í bensín leka. Þetta eru þó vandamál sem var auðvelt að leysa og væri skrítið ef 50 ára gamall bíll myndi ekki fara í gegnum smávegis erfiðleika.
Valdi frekar að keyra í gegnum Rússland
Næstu vandræði fyrir Renan var að taka ákvörðun hvort hann myndi keyra í gegnum Rússland eða Kína. Til þess að keyra í Kína þarf að hafa kínverskt ökuskírteini, alþjóðleg ökuskírteini eru ekki tekin gild í landinu. Renan sá ekki fyrir sér að geta reddað ökuleyfi í Kína þannig hann valdi frekar að keyra í gegnum Rússland. Hann gat þó ekki farið hefðbundna leið inn í landið, vegna lokun landamæra, en þurfti að keyra í gegnum Tyrkland og Georgíu og þannig inn í Rússland.
Með flutningaskipi yfir til Busan í Suður-Kóreu
Þegar Renan kom til Rússlands lenti hann í árekstri en slapp við meiðsli sem betur fer. Peugeot-bílinn tjónaðist töluvert , sérstakleg að framan. Hann þurfti því að dúsa í Síberíu að vetri til og gekk illa að laga bílinn. Þegar bíllinn var loksins lagaður gat hann haldið áfram ferðalagi sínu í átt að austurströnd Rússlands. Aksturinn hélt áfram, komst að lokum til Vladivostok þar sem hann fór með flutningaskipi yfir til Busan í Suður-Kóreu. Dvölin þar var stutt og tók svo næsta skip yfir til Japans.
Þegar hann mætti til Japans upplifði hann mikinn létti og stutt eftir af þessu ævintýri. Að lokum komst hann loksins til Tókýó þar sem hópur fólks tók á móti honum fagnandi, þar á meðal forstjóri Peugeot í Japan. Þessi saga segir okkur að, allt sé hægt ef viljinn er fyrir hendi.







